Ísbrjótar með áherslu á fjölbreytileikann
Hér má finna ísbrjóta og verkefni með áherslu á fjölbreytileika sem mikilvægt er að kennarar vinni með nemendum áður en farið er í gegnum myndböndin og verkefnin sem fylgja þeim. Mikilvægt er að blanda hópnum vel þar sem markmiðið er að nemendur kynnist samnemendum betur.
Markmið:
- Að efla samkennd og samvinnu innan hópsins.
- Fá nemendur til að átta sig á að þó að við séum öll ólík eigum við líka margt sameiginlegt.
- Skapa öruggt rými til að auðvelda nemendum að taka virkan þátt í umræðum um fordóma.
Við mælum með að farið sé í ísbrjót fyrir hvert þema í vinnustofunni.



