Hvað eigum við sameiginlegt?
Markmið:
- Að nemendur kynnist hvor öðrum betur.
- Að nemendur sjái hvað þeir eigi sameiginlegt með hvor öðrum.
- Skapa skemmtilegt andrúmsloft hjá hópnum.
Hæfniviðmið
Lykilhæfni:
- Unnið með öðrum og lagt sitt af mörkum í uppbyggilegu samstarfi sem tengist námi og félagsstarfi.
- Nemandi getur brugðist við margvíslegum upplýsingum og hugmyndum, hlustað, tekið þátt í umræðum og tekið tillit til ólíkra sjónarmiða.
Samfélagsgreinar:
- Nemandi getur tekið ábyrgan þátt í lýðræðislegu samstarfi og samræðu.
Tímalengd:
15-25 mín
Efni og undirbúningur:
Hvít blöð (A5)
Blýantar fyrir nemendur.
Framkvæmd verkefnis:
Innlögn (5 mín):
Kennari skiptir nemendum upp í hópa (3-4 saman í hóp) og lætur hvern hóp fá eitt A5 blað og blýant. Kennarinn útskýrir fyrir nemendum að þau fái 5 mínútur til að finna að minnsta kosti 5 atriði sem allir í hópnum eiga sameiginlegt, utan skólans. Fatnaður og líkamspartar eru ekki taldir með.
Leikurinn (10 mín):
Nemendur spjalla saman og einn úr hverjum hóp skrifar niður á blaðið það sem þau finna út að allir eiga sameiginlegt. Atriði sem nemendur gætu nefnt er til dæmis: allir hafa horft á netflix, allir hafa farið í bíó, allir eiga gæludýr, allar hafa týnt lyklunum sínum. Þegar tíminn er búinn á einn úr hverjum hóp að lesa á blaðið hvað þeirra hópur á sameiginlegt.
Samantekt (5-10 mín):
Umræður - hér eru dæmi um spurningar sem kennarar geta spurt í lokin.
Er eitthvað sem kom ykkur á óvart í leiknum?
Fannst ykkur auðvelt eða erfitt að finna eitthvað sameiginlegt með öðrum?
Hvað lærðuð þið nýtt um samnemendur ykkar?




