Stígum saman
Markmið:
- Að hjálpa nemendum að kynnast betur
- Að nemendur átti sig á því að þeir eigi margt sameiginlegt og ósameiginlegt
Hæfniviðmið
Lykilhæfni:
- Unnið með öðrum og lagt sitt af mörkum í uppbyggilegu samstarfi sem tengist námi og félagsstarfi
- geti sinnt hlutverki sínu í samstarfi og axlað ábyrgð
Tímalengd:
10-20 mín
Efni og undirbúningur:
Skipta þarf nemendu í pör
Hafa þarf pláss þannig að tveir nemendur geti staðið
andspænis hvort öðru og tekið skref áfram.
Framkvæmd verkefnis:
Innlögn (5 mín):
Kennari segir nemendum að þeir séu að fara í leik til að læra meira um hvort annað. Kennari skiptir nemendum í pör og raðar þeim þannig að nemendur snúi andspænis hvor öðrum.
Leikurinn (5-10 mín):
Kennari segir fullyrðingu og ef hún á við um nemandur stíga þeir fram, ef ekki, þá standa þeir kyrrir. (Hægt er að hafa leikinn þannig að nemendur gefi hvor öðrum high five ef báðir stíga fram).
Dæmi um fullyrðingar:
- Ég borða ananas á pítsu.
- Ég ,,snoozaði" í morgun.
- Ég sef með símann við hliðina á rúminu mínu.
- Ég fæddist í Reykjavík.
- Mér finnst skemmtilegt að horfa á körfubolta.
- Ég hef farið til London.
- Ég hef mætt og seint í skólann.
- Ég hef sofnað yfir bíómynd.
- Stígðu fram ef þér finnst sterkur matur góður.
- Ég á yngra systkini.
- Ég hef farið til Akureyrar.
Samantekt (5-10 mín):
- Áttuð þið mikið eða lítið sameiginlegt með félaga ykkar?






