BINGÓ-Finndu einhvern sem
Markmið:
- Að nemendur kynnist hvor öðrum betur.
- Að nemendur sjái hvað þeir eigi sameiginlegt með hvor öðrum.
Hæfniviðmið:
Lykilhæfni:
Unnið með öðrum og lagt sitt af mörkum í uppbyggilegu samstarfi sem tengist námi og félagsstarfi.
Getur sinnt hlutverki sínu í samstarfi og axlað ábyrgð.
Tímalengd:
20-40 mín
Efni og undirbúningur:
Kennari prentar út bingóspjöld fyrir nemendur.
Blýantar fyrir nemendur.
Framkvæmd verkefnis:
Innlögn (5mín):
Kennari útskýrir markmið leiksins og lætur alla nemendur fá bingóspjöld.
Leikurinn (10 mín):
Nemendur ganga um stofuna, spjalla við samnemendur og fylla út bingóspjöldin. Nemendur setjast aftur í sitt sæti þegar þeir hafa klárað að fylla út spjaldið sitt.
Samantekt (5-10 mín):
Umræður - hér eru dæmi um spurningar sem kennarar geta spurt í lokin.
Er eitthvað sem kom ykkur á óvart í leiknum?
Fannst ykkur auðvelt eða erfitt að finna eitthvað sameiginlegt með öðrum?
Hvað lærðuð þið nýtt um samnemendur ykkar?



