Smáviðtal
Markmið:
- Æfa sig í munnlegri tjáningu og samskiptum
- Að nemendur átti sig á hvað þeir eigi sameiginlegt með öðrum og hvað er ólíkt.
- Þjálfast í að spyrja spurninga og nota virka hlustun.
Hæfniviðmið
Lykilhæfni:
- Að nemendur geti unnið með öðrum og lagt sitt af mörkum í uppbyggilegu samstarfi sem tengist námi og félagsstarfi.
- Nemandi getur sinnt hlutverki sínu í samstarfi og axlað ábyrgð.
Íslenska:
- Nemandi getur flutt mál sitt skýrt og áheyrilega með viðeigandi talhraða, tónfalli, áherslum og fasi.
Tímalengd:
15-25 mín
Efni og undirbúningur:
Hvít blöð (A5)
Blýantar fyrir nemendur.
Framkvæmd verkefnis:
Innlögn (5 mín):
Kennari skiptir nemendum upp í pör og lætur hvert par fá tvö blöð og blýant. Kennarinn útskýrir fyrir nemendum að þau fái 5 mínútur til að skiptast á að taka viðtal við hvort annað og svo eigi þau að kynna hvort annað fyrir öllum hópnum.
Kennari gæti verið búin að útbúa blað með spurningum eða skrifað dæmi um spurningar upp á töflu.
Hugmyndir má finna neðst í skjalinu.
Leikurinn (5-10 mín):
Kennari kveikir á tíma og stillir á 2 mínútur. Annar aðilinn er spyrill, tekur viðtal við hinn og skrifar svörin niður á blað hjá sér. Þegar 2 mínútur eru liðnar skipta þeir um hlutverk og viðmælandinn verður spyrillinn og öfugt. Þegar tíminn er búinn segja pörin frá hvort öðru.
Samantekt (5-10 mín):
Umræður - hér eru dæmi um spurningar sem kennarar geta spurt í lokin.
Lærðiru eitthvað nýtt um félaga þinn?
Kom eitthvað á óvart?
Finnst þér þú þekkja samnemendur þína betur núna?
Dæmi um spurningar sem nemendur geta spurt hvort annað:
- Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í frítíma þínum?
- Í hverju ertu sérstaklega góður/góð í?
- Ef þú mættir velja hvaða land sem er til að heimsækja, hvert myndirðu fara?
- Hvað fær þig til að hlæja?
- Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum?




