Stígðu fram ef
Markmið:
- Að efla samkennd og skilning á fjölbreytileika innan bekkjarins.
- Að nemendur átti sig á hvað við eigum margt sameiginlegt, þrátt fyrir ólíkan bakgrunn.
- Að skapa jákvætt og öruggt andrúmsloft þar sem allir upplifa sig sem hluta af hópnum.
Hæfniðviðmið:
Lykilhæfni: Sýnt frumkvæði, sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum,
Tímalengd:
20-30 mínútur
Efni og undirbúningur:
Listi með setningum (sjá fylgiskjal/búa til eigin)
Framkvæmd leiksins:
Innlögn (5 mín).
Útskýrið markmið leiksins. Segið nemendum að það sé enginn skyldugur að stíga fram.
Þátttaka byggist á trausti og virðingu.
Leikurinn sjálfur (6 -10 mín).
Nemendur standa í röð eða mynda hring. Kennari les upp setningar eins og:
- „Stígðu fram ef þú átt systkini.“
- „Stígðu fram ef þú átt gæludýr.“
- „Stígðu fram ef þú ert hræddur við köngulær.“
Nemendur stíga fram ef setningin á við um þau.
Lokaumræða (5-10 mín):
Spyrjið opinna spurninga, til dæmis: hvað sáuð þið, kom eitthvað á óvart, hvað sýnir þessi leikur okkur?



