Ljóð um sjálfsmynd
Markmið:
- Markmið verkefnisins er að nemendur tjái eigin sjálfsmynd með ljóði.
- Að nemendur átti sig á hvað þeir eiga sameiginlegt með öðrum.
Hæfniviðmið:
Íslenska:
Geta áttað sig á og beitt sköpunarmætti tungumálsins og nýtt það m.a. við ritun, tal, nýyrðasmíð, í orðaleikjum og skáldskap.
Lykilhæfni:
Sýnt frumkvæði, sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum.
Tímalengd:
40-60 mínútur
Efni og undirbúningur
Hvít blöð (A5)
Blýantar
Litir/pennar
Framkvæmd verkefnis:
Innlögn (5-10 mín):
Kennari útskýrir fyrir nemendum að þeir ætli að semja einfalt tígulljóð um þau sjálf (sjá uppsetningu á næstu síðu). Kennari útskýrir uppsetningu á ljóðinu og sýnir nemendum dæmi. Nemendum er sagt að ljóðið verði hengt upp og að markmiðið sé að skoða hvað við eigum sameiginlegt með samnemendum. Gott er að kennari sé búinn að semja sitt eigið ljóð og lesi fyrir nemendur í lok tímans. Kennari dreifir blöðum til nemenda.
Verkefnavinna (30 mín):
Nemendur semja ljóð, skrifa það á blaðið og fara svo ofan í það með penna eða litum ofan.
Samantekt (5 mín):
Kennari les upp sitt ljóð og spyr nemendur hvort að einhver vilji lesa sitt ljóð fyrir hópinn.
Kennari tekur við ljóðum nemenda og hengir þau upp og hvetur nemendur til að skoða ljóðin hjá hvort öðru.
Uppsetning ljóðs:
Fyrsta nafn
2 lýsingarorð til að lýsa sjálfum sér
Sambönd/tengsl til dæmis vinur, bróðir, dóttir, nemandi
3-5 hlutir sem nemendur elska
1-3 hlutir sem nemendur hræðast
1-2 hlutir sem nemendur dreymir um
Heimabær eða land
Eftirnafn
Dæmi um ljóð: María
skemmtileg, hugrökk,
vinkona, systir, frænka, nemandi
elskar að spila fótbolta, oreo kex, ketti, vini
er hrædd við köngulær og eldingar
dreymir um að fara til Ítalíu
Reykjanesbær
Jónsdóttir



