Markmið:

  • Að nemendur öðlist skilning á hugtakinu fordómar.
  • Að nemendur átti sig á að fordómar geta verið meðvitaðir og ómeðvitaðir
  • Að nemendur átti sig á birtingarmyndum fordóma.
  • Að nemendur átti sig á því að öll séu með fordóma.
  • Að nemendur skilji tengsl staðalmynda og fordóma.
  • Að nemendur átti sig á hvaðan fordómar koma.
  • Að nemendur átti sig á afleiðingum fordómar.
  • Að nemendur átti sig á því að öll bera ábyrgð á því að uppræta fordóma.
  • Að nemendur öðlist skilning á hugtakinu hatursorðræða.


Fræðslumyndband um fordóma

Umræðupunktar

  • Í myndbandinu kemur fram að fordómar birtist meðal annars á samfélagsmiðlum og spjallrásum tölvuleikja.
    Hafið þið orðið vitni af fordómum á þessum stöðum? Hvar annars staðar hafið þið orðið vitni af fordómum? Hvers kyns fordómum?
  • Hvað er átt við í myndbandinu þegar fordómum er líkt við samtenginguna á poppi og kóki eða malti og appelsíni? Getið þið nefnt dæmi.
  • Af hverju er fólk með fordóma? Hvað haldið þið?
  •  Lærðuð þið eitthvað nýtt í myndbandinu? Hvað fannst ykkur áhugaverðast?

 (sjá dæmi um svör í kennsluleiðbeiningum).