Allir í röð
Markmið:
- Að hjálpa nemendum að kynnast betur
- Að virkja samskipti og samvinnu í hópnum
Hæfniviðmið
Lykilhæfni:
- Unnið með öðrum og lagt sitt af mörkum í uppbyggilegu samstarfi sem tengist námi og félagsstarfi
- geti sinnt hlutverki sínu í samstarfi og axlað ábyrgð
Tímalengd:
10-20 mín
Efni og undirbúningur:
Hafa þarf nægt rými til að hópurinn geti staðið í röð
Gott er að miða við að hafa ekki fleiri en 20 í hóp
Framkvæmd verkefnis:
Innlögn (5 mín):
Kennari biður nemendur að standa upp og útskýrir að markmiðið sé að raða sér í röð eftir ákveðnum fyrirmælum, t.d. eftir hæð nemenda (hæsti til lægsti). Nemendur mega ekki tala saman og þurfa að nota látbragð.
Leikurinn (5-10 mín):
Kennarinn gefur fyrirmæli um hvernig nemendur eigi að raða sér og nemendur raða sér í röð eftir fyrirmælunum sem kennari gefur. Hægt er að nýta margar mismunandi leiðir, til dæmis:
- Afmælisdagur nemenda
- Hversu mörg tungumál nemendur tala
- Hversu langt þeir búa frá skólanum
- Augnlitur (ljósastur til dekkstur)
- Hárlitur (ljósastur til dekkstur)
Samantekt (5-10 mín):
- Hvað hjálpaði ykkur að ná samstöðu fljótt?
- Var auðvelt eða erfitt að vinna án þess að tala?
- Hvað segir þetta okkur um samvinnu í hópum?




