Undirbúningur kennara

Að ræða viðkvæm málefni

Að tala um kynþáttafordóma og tilfinningarnar sem tengjast þeim getur verið erfitt. Kennarar eru þó í góðri stöðu til að leiða slíkar samræður. Í skólanum er hægt að skapa öruggt rými þar sem nemendur fá stuðning til að ræða mikilvæg málefni sem tengast lífi þeirra og samfélaginu.


Áður en kennsla hefst er gott að kennarar ígrundi eigin viðhorf og reynslu tengda kynþáttafordómum og mismunun. Með því er auðveldara að ræða efnið á opinn og heiðarlegan hátt.

Spurningar til umhugsunar:
• Hvað finnst mér auðvelt eða erfitt að ræða um?
• Hver er mín reynsla af kynþáttafordómum?
• Hversu þægilegt finnst mér að ræða þetta efni?


Þessi umræða getur verið krefjandi og viðkvæm og þess vegna mælum við með að kennarar lesi þennan leiðarvísi sem ætlaður er að veita kennurum verkfæri til þess að geta rætt erfið málefni við nemendum. 


VITNA Í PASS THE MIC-TEACHER'S GUIDE



New Paragraph

We love to create, and it shows. 

Tell us what you have in mind, and we'll create the best team possible for making it a reality.