Markmið:
Að nemendur öðlist skilning á hugtakinu kynþáttafordómar/rasismi
Að nemendur átti sig á birtingarmyndum kynþáttafordóma og afleiðingum þeirra.
Að nemendur átti sig á sögulegu samhengi kynþáttafordóma.
Að nemendur átti sig á sögulega samhengi n-orðsins og skaðsemi þess.
Að nemendur þjálfist í að geta brugðist við kynþáttafordómum.
Fræðslumyndband um kynþáttafordóma
Umræðupunktar
- Í myndbandinu kemur fram að rasismi sé kerfisbundinn? Hvað er átt við með því?
- Í myndbandinu kemur fram að í raun megi segja að kynþáttafordómar hafi skapað kynþætti/kynþáttaflokkun en ekki öfugt. Hvað er átt við með því?
- Hvernig birtast kynþáttafordómar ennþá í dag?
- Hvað er átt við þegar sagt er að kynþáttafordómar geti verið ómeðvitaðir? Nefnið dæmi.



