Hatursorðræða á netinu
Markmið
- Að nemendur þekki hugtakið hatursorðræða.
- Að nemendur átti sig á birtingarmynd hatursorðræðu á netinu.
- Að nemendur viti hvernig hægt sé að bregðast við hatursorðræðu á netinu.
Hæfniviðmið
Upplýsinga- og tæknimennt
- Gert grein fyrir helstu siðareglum á netinu og skilið hvernig þær byggja á gagnkvæmri virðingu og beitt leiðum til að vernda sig og aðra fyrir neteinelti, hatursorðræðu og stafrænum átökum.
Samfélagsgreinar:
- Ígrundað eigin getu til aðgerða og beitt sér á ábyrgan hátt fyrir málefnum sem stuðla að betra samfélagi.
Lykilhæfni:
- Tjáð hugmyndir og tilfinningar á skýran og skipulegan hátt.
- Brugðist við margvíslegum upplýsingum og hugmyndum, hlustað, tekið þátt í umræðum og tekið tillit til ólíkra sjónarmiða.
Tímalengd: 40-60 mínútur
Efni og undirbúningur:
Skjár
Myndband -
Hate speech online
Tafla og töflutúss
Útprentuð blöð fyrir hvern hóp - fylgiskjal....
Framkvæmd verkefnis
Innlögn/kveikja (10-15 mín):
- Kennari skrifar orðið hatursorðræða á töfluna og biður nemendur um að skilgreina það eða koma með hugmyndir um það sem þau telja að hatursorðræða sé. Einnig er hægt að byrja tímann á að spila hengimann þar sem orðið er hatursorðræða.
2. Þegar kennari hefur fengið hugmyndir frá nemendum spilar hann myndbandið Hate speech online frá Common sense media.
Verkefnavinna (15-20 mínútur):
3. Nemendur vinna saman í 3-5 manna hópum.
Kennari dreifir blöðum með spurningum til hópanna.
4. Hóparnir svara eftirfarandi spurningum:
Hvernig skilgreinið þið hatursorðræðu?
Á hvaða samfélagsmiðlum hafið þið orðið vitni af hatursorðræðu?
Eruð þið sammála unglingunum í myndbandinu að hatursorðræða sé alls staðar á netinu?
Hvað er hægt að gera til að berjast gegn hatursorðræðu á netinu?
Af hverju haldið þið að fólk skrifi hatursfull skilaboð/athugasemdir á netinu?
Á meðan gengur kennarinn um stofuna og aðstoðar nemendur.
Umræður (10-15 mín) :
5. Kennari skrifar tölustaf hverrar spurningu á töfluna og biður hvern hóp að svara einni spurningu og skrifar svarið eða stikkorð úr svörum á töfluna.
6. Þegar allir hópar hafa svarað einni spurningu gerir kennarinn stutta samantekt á svörum nemenda með hópnum.
7. Kennari minnir nemendur á að hægt sé að tilkynna hatursorðræðu á öllum samfélagsmiðlum.





