Hatursorðræða á netinu


Markmið:

  • Að nemendur þekki hugtakið hatursorðræða.
  • Að nemendur átti sig á birtingarmynd hatursorðræðu á netinu.
  • Að nemendur viti hvernig hægt sé að bregðast við hatursorðræðu á netinu.



Hæfniviðmið:


Upplýsinga- og tæknimennt

Gert grein fyrir helstu siðareglum á netinu og skilið hvernig þær byggja á gagnkvæmri virðingu og beitt leiðum til að vernda sig og aðra fyrir neteinelti, hatursorðræðu og stafrænum átökum.

Samfélagsgreinar:  Ígrundað eigin getu til aðgerða og beitt sér á ábyrgan hátt fyrir málefnum sem stuðla að betra samfélagi.

Lykilhæfni:

Tjáð hugmyndir og tilfinningar á skýran og skipulegan hátt.

Brugðist við margvíslegum upplýsingum og hugmyndum, hlustað, tekið þátt í umræðum og tekið tillit til ólíkra sjónarmiða.


Tímalengd:  40 mínútur


Efni og undirbúningur:

Skjár

Myndband - Hate speech online

Tafla og töflutúss

Útprentuð blöð fyrir hvern hóp - fylgiskjal....


Framkvæmd verkefnis:


Innlögn/kveikja (10-15 mín): 

 Kennari skrifar orðið hatursorðræða á töfluna og biður nemendur um að skilgreina það eða koma með hugmyndir um það sem þau telja að hatursorðræða sé. Einnig er hægt að byrja tímann á að spila hengimann þar sem orðið er hatursorðræða.

Þegar kennari hefur fengið hugmyndir frá nemendum spilar hann myndbandið Hate speech online frá Common sense media.


Verkefnavinna (10-15 mínútur): 

Nemendur vinna saman í 3-5 manna hópum.
Kennari dreifir blöðum með spurningum til hópanna.

Hóparnir svara eftirfarandi spurningum:

Hvernig skilgreinið þið hatursorðræðu?

Á hvaða samfélagsmiðlum hafið þið orðið vitni af hatursorðræðu?

Eruð þið sammála unglingunum í myndbandinu að hatursorðræða sé alls staðar á netinu?

Hvað er hægt að gera til að berjast gegn hatursorðræðu á netinu?

Af hverju haldið þið að fólk skrifi hatursfull skilaboð/athugasemdir á netinu?

Á meðan gengur kennarinn um stofuna og aðstoðar nemendur.


Umræður (10-15 mín) :

Kennari skrifar allar spurningarnar á töfluna. Kennari biður hvern hóp að svara einni spurningu og skrifar svarið undir spurninguna á töflunni. Þegar allir hópar hafa svarað einni spurningu gerir kennarinn stutta samantekt á svörum nemenda með hópnum.

Kennari minnir nemendur á að hægt sé að tilkynna hatursorðræðu á öllum samfélagsmiðlum.