Fréttir um fordóma á Íslandi


  Markmið:

  • Greina fordóma í fjölmiðlum.
  • Getur rætt um áhrif fordóma.
  • Átta sig á ólíkum birtingarmyndum fordóma á Íslandi.


Hæfniviðmið:

Samfélagsgreinar: Að nemendur geti fjallað með gagnrýnum hætti um og greint staðalmyndir og fordóma, uppruna þeirra og afleiðingar.

Sett sig í spor fólks með ólíkan bakgrunn og viðhorf á ýmsum stöðum og tímum,

Lykilhæfni: Að nemendur geti ólíkum sjónarhornum og gagnrýninni hugsun í fjölbreyttum viðfangsefnum.

Brugðist við margvíslegum upplýsingum og hugmyndum, hlustað, tekið þátt í umræðum og tekið tillit til ólíkra sjónarmiða

Íslenska:  Að nemendur geti miðlað þekkingu sinni og reynslu, tjáð hugmyndir sínar og skoðanir og fært rök fyrir þeim með fjölbreyttum leiðum.


Tímalengd:

40 mínútur


Efni og undirbúningur:

Útprentaðar fréttir fyrir hvern hóp eða linkur á frétt sendur til nemenda.

Útprentaðar verkefnalýsingar

Nemendum skipt í hópa (3-5).

Hvít blöð og blýantar (eitt blað og blýantur per hóp).


Hlekkur á fréttir:

Dökk að utan en mjólkurhvít að innan

Erfitt að samfélagið líti ekki á mann sem Íslending

Segja okkur að hengja okkur og drepa okkur

Situr undir geltu og urri og að vera kölluð api

Allt annað að sjá einhvern eins og ég

Fordómar hinna fullorðnu verstir, að vera kölluð Birta api í æsku tók alveg á

Fordómar á vinnumarkaði: Mun líklegra að Guðmundur fáistarfiðen Muhammed og Aisha


Framkvæmd verkefnis:

Innlögn (5 mín): 

 Kennari segir nemendum að þeim verði skipt í hópa og að hver hópur fái eina frétt. Með fréttinni fylgja spurningar sem nemendur eiga að svara og kynna svo stuttlega fyrir öðrum hópum. Nemendur setjast í hópana og fá frétt á rafrænu formi eða útprentaða.  Hver hópur fær blað og blýant til að skrifa niður svörin.


Verkefnavinna (20 mín):  Nemendur lesa fréttina og svara spurningunum sem fylgja fréttinni.

Um hvern eða hverja er fréttin?

Hvernig birtast fordómar í fréttinni?

Hvaða áhrif geta þessir fordómar hafa á einstaklingana sem tilheyra þessum hópi?


Umræður (15 mín):

Kennari biður hvern hóp að deila svörum frá sinni frétt. Þegar allir hafa deilt

sínum svör spyr kennari nemendur hvað þeir lærðu af þessu verkefni.