Staðalímyndir - Kartöfluverkefnið
Markmið:
- Að nemendur átti sig á staðalímyndum.
- Að nemendur átti sig á skaðlegum áhrifum staðalímynda.
- Að nemendur átti sig á sérstöðu hvers og eins.
Hæfniviðmið:
Samfélagsgreinar: Fjallað með gagnrýnum hætti um og greint staðalmyndir og fordóma, uppruna þeirra og afleiðingar.
Lykilhæfni: Beitt ólíkum sjónarhornum og gagnrýninni hugsun í fjölbreyttum viðfangsefnum.
Brugðist við margvíslegum upplýsingum og hugmyndum, hlustað, tekið þátt í umræðum og tekið tillit til ólíkra sjónarmiða
Tímalengd:
40 mínútur
Efni og undirbúningur:
Kartöflur (ein fyrir hvern nemanda) og ein kartafla fyrir kennara.
Pokar (einn poki fyrir hvert borð).
Kennari skiptir nemendum í hópa (5-8 manna).
Framkvæmd verkefnis:
Innlögn (10 mín):
Kennari tekur eina kartöflu og sýnir nemendum. Kennari segir við nemendur ,,Ég veit ekki með ykkur, en ég hef aldrei hugsað mikið um kartöflur. Mér finnst þær flestar svipaðar. Ég velti fyrir mér hvort kartöflur séu kannski svolítið eins og fólk.“ Í tímanum í dag ætlum við aðeins að velta því fyrir okkur.
Nemendur setjast í hópa.
Kennari lætur poka með kartöflunum ganga um bekkinn og biður hvern nemanda um að taka eina kartöflu.
Segðu: „Skoðið kartöfluna ykkar vel, lögun hennar, dældir og rispur í um það bil eina mínútu. Kynnið ykkur hana svo vel að þið getið lýst henni fyrir félaga ykkar"
Verkefnavinna (15 mín):
Nemendur skoða kartöflurnar sínar í eina mínútu. Þegar ein mínúta er búin eru nemendur beðnir um að kynna kartöfluna sína fyrir hinum í hópnum. Kennari spyr hvort einhver nemandi vilji kynna sína kartöflu fyrir öllum. Kennarinn biður svo alla nemendur að setja kartöflur í pokann á sínu borði og rugla þeim. Kennari spyr nemendur hvort þeir séu sammála því að allar kartöflur séu eins? Af hverju? Af hverju ekki?
Kennari biður nemendur á hverju borði að reyna að finna sína kartöflu í pokanum. Þegar allir hafa fundið sína kartöflu segir kennarinn ,,Kannski
eru kartöflur svolítið eins og fólk. Stundum setjum við alla úr sama hópi í einn flokk. Þegar við hugsum: 'Þau eru öll eins,' þá erum við í raun að segja að við höfum ekki gefið okkur tíma til að kynnast einstaklingunum. Þegar við gerum það, komumst við að því að allir eru ólíkir og sérstakir á sinn hátt, rétt eins og kartöflurnar“
Umræður (15-20 mín) :
Kennari biður hvern hóp að hugsa um hópa í samfélaginu sem við eigum það til að setja alla undir sama hatt.
Ef nemendur eiga erfitt með að koma með dæmi má benda á eftirfarandi hópa t.d. :
Stelpur, strákar, múslimar, hinsegin fólk, flóttafólk, innflytjendur, unglingar, eldra fólk...
Ræðið eftirfarandi þegar nemendur hafa komið með dæmi:
Hvað kallast það þegar við setjum alla úr sama hópi í einn flokk og gerum ráð fyrir að þeir hafi sömu eiginleika?
Þekkið þið fólk sem tilheyrir einhverjum af þeim hópum sem við töldum upp?
Passa þeir allir við staðalímyndina?
Hvers vegna eru staðalímyndir skaðlegar?



