BINGÓ-Hvítleiki sem normið



  Markmið:

  • Að nemendur þekki hvít forréttindi.
  • Að nemendur átti sig á forréttindastöðu sinni.


Hæfniviðmið:

Lykilhæfni: Nemendur getur beitt ólíkum sjónarhornum og gagnrýninni hugsun í fjölbreyttum viðfangsefnum.


Tímalengd: 20-40 mín


Efni og undirbúningur:

Prenta út BINGO spjöld - sjá fylgiskjal.


Framkvæmd verkefnisins:

Öllum nemendum er afhent BINGO spjald. Kennari les yfir staðhæfingarnar eina í einu og útskýrir eftir því sem við á. Eftir hverja staðhæfingu merkja nemendur við með x hvort að staðhæfingin eigi við um þau. Í lok verkefnisins eru nemendur beðnir um að skrifa á post-it miða hversu mörg stig þau fengu og afhenda kennaranum sem tekur það saman. Gæta þarf að nemendur merki ekki miðana sína þar sem þetta á að vera nafnlaust.


Umræður:

Kennarinn tekur saman post-it miðana og raðar upp stigum nemenda eftir stigafjölda.

Mikilvægt að ræða að öll erum við með forréttindi á einhverjum sviðum.