Kynþáttafordómar - Umræðuverkefni
Markmið:
- Að nemendur geti gert greinarmun á meðvituðum og ómeðvituðum fordómum.
- Að nemendur geti tekið þátt í umræðum um viðkvæm málefni virðingarríkan hátt.
- Að nemendur geti rökstutt afstöðu sína.
Hæfniviðmið:
Samfélagsgreinar:
Fjallað með gagnrýnum hætti um og greint staðalmyndir og fordóma, uppruna þeirra og afleiðingar.
Tímalengd:
40 mínútur
Efni og undirbúningur:
Skipta þarf nemendum í hópa (3-4 í hóp).
Prenta út Exit miða
Framkvæmd verkefnis:
Innlögn (5 mín):
Kennari spyr nemendur hvað fordómar eru (kanna forþekkingu).
Kennari minnir nemendur á að fordómar séu skoðanir sem fólk hefur á einstaklingum eða hópum án þessa að þekkja þá.
Framkvæmd verkefnis (12-20 mín):
Kennari lætur nemenda setjast í hópa. Kennari les fyrstu fullyrðinguna og skrifar hana á töfluna.
,,Öll sem eru með kynþáttafordóma eru vondar manneskjur.”
Nemendur ræða saman í sínum hópum og taka afstöðu með fullyrðingunni og rökstyðja svar sitt. Eftir 3 mínútur biður kennari nokkra nemendur að segja frá sínu svari.
Þetta er síðan endurtekið með þessar tvær fullyrðingar.
,,Það eru öll með fordóma.’’
,,Kynþáttafordómar geta verið meðvitaðir og ómeðvitaðir.”
Samantekt (10-15 mín):
Kennari tekur saman með helstu niðurstöður úr umræðum nemenda.
Leggur áherslu á að öll séu með einhverja fordóma, og oft áttum við okkur ekki endilega á þeim því þeir geta verið ómeðvitaðir. Þess vegna er mikilvægt að við lærum um fordóma svo að við getum áttað okkur á eigin fordómum.
Í lok tímans fá nemendur Exit miða þar sem þeir svara spurningunni
Hvað lærði ég um fordóma í dag?



