Tilheyrum við öll?
Vinnustofa gegn fordómum

Um verkefnið


Tilheyrum við öll? - Vinnustofa gegn fordómum er heildstætt námsefni sem ætlað er nemendum á unglingastigi.

Verkefnið er sett upp í anda ,,viku 6 " þar sem nemendur kafa dýpra í málefnið yfir eina viku.

Verkefnin er einnig hægt að vinna stök eða dreifa yfir lengra tímabil.


Á vefnum má finna fræðslumyndbönd um fordóma, kynþáttafordóma, menningarfordóma, öráreiti og áhrif og viðbrögð við fordómum. Myndböndunum fylgja umræðupunktar og fjölbreytt verkefni. Verkefnin og myndböndin voru unnin í samvinnu við Miriam Petru Ómarsdóttur Awad, sérfræðing í fjölmenningu og inngildingu.



Efnið er þannig uppsett að það eigi að veita nemendum tækifæri til að fræðast um fordóma, birtingarmyndir og áhrif þeirra og hvað sé til bragðs að taka þegar kemur að upprætingu fordóma í samfélaginu.

Markmið vinnustofunnar er að hvetja nemendur til að hugsa gagnrýnið, sýna samkennd og bera virðingu fyrir fjölbreytileika samfélagsins.


Verkefnin taka mið af Aðalnámsskrá grunnskóla, menntastefnu Reykjanesbæjar, heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og Barnasáttmálanum.  Hægt er að lesa nánar um það hér


Verkefnið er styrkt af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og Reykjanesbæ.



Sérstakar þakkir fá Stapaskóli, Miriam Petra, Undireins og Bókasafn Reykjanesbæjar.






Um okkur

Selma Ruth Iqbal

Verkefnastjóri ÍSAT

Diplóma í pólskum fræðum
Diplóma í hnattrænum tengslum, fólksflutningum og fjölmenningarfræð

MT í kennslufræði yngri barna í grunnskóla.

MIB í alþjóðlegum viðskiptum

BS í sálfræði



Hólmfríður Rún Guðmundsdóttir

Sérkennari

Diplóma í sérkennslufræði

MT í menntunarfræðum

BA í uppeldis- og menntunarfræði

Linda Ósk Júlíusdóttir

Þroskaþjálfi

BA í þroskaþjálfafræðum

Umsagnir nemanda

Mér fannst myndböndin geggjuð 👍👍🏽👍🏾

Mér finnst ég tilbúnari til að tala um fordóma.

Ég get frekar greint fordóma og reynt að hjálpa til við að stoppa þá.


Nemandi í 8.bekk

Mér fannst myndböndin áhugaverð og það voru góð dæmi um fordóma í myndböndunum.

Vinnustofan var mjög skemmtileg og sérstaklega kartöfluverkefnið en þar lærðum við hvað allir eru einstakir.

Nemandi í 8.bekk

.

Mér fannst þetta geggjað verkefni og ég mæli mjög mikið með. Þetta var góð leið til að ræða um rasisma, skilja hvernig hann kemur fram og koma í veg fyrir fordóma.

Nemandi í 8.bekk

.

Þetta var mjög fræðilegt og skemmtilegt verkefni. Ég lærði um að rasismi getur komið fram á ólíkan hátt. Mér finnst ég geta stígið inn í aðstæður þar sem eru fordómar því mér finnst ég betur vita hvað ég get sagt.

Nemandi í 8.bekk

.

Mér fannst mjög gaman að fjalla um þetta og ég lærði margt nýtt um allskonar fordóma. Mér fannst ísbrjótarnir skemmtilegastir, að skoða hvað við eigum sameiginlegt og líka að taka þátt í umræðum.

Nemandi í 8.bekk

.

Mér finnst allt sem við erum búin að læra mjög skemmtilegt og áhugavert. Mér persónulega finnst að unglingar í dag þurfi að læra um fordóma og hvaða áhrif þeir hafa á fólk. Það var gaman að fara yfir þetta og líka að fara í leikina.

Nemandi í 8.bekk

.