Tenging við Aðalnámsskrá grunnskóla
Öll verkefnin í vinnustofunni eru tengd við hæfniviðmið Aðalnámsskrár sem sett eru fyrir lok 10.bekkjar.
Í verkefnunum eru aðallega tekin fyrir hæfniviðmið í samfélagsgreinum, lykilhæfni og íslensku.
Hægt er að sjá undir hverju verkefni hvaða hæfniviðmið liggja til grundvallar.
Vinnustofan tekur mið af öllum grunnþáttum menntunar
Læsi: Nemendur læra að greina og þekkja birtingarmyndir fordóma í samfélaginu, bæði í samskiptum, fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Þeir þjálfast í að hugsa gagnrýnið um upplýsingar, staðalímyndir og orðræðu sem tengist m.a. kynþætti og menningu.
Sjálfbærni: Sjálfbærni snýst ekki bara um umhverfið heldur byggir hún einnig á virðingu, jöfnuði, réttlæti og lýðræðislegri þátttöku. Með því að skoða eigin viðhorf og ræða álitamál af opnum huga má draga úr fordómum og stuðla að samfélagi þar sem fjölbreytileiki er metinn og allir njóta jafnræðis.
Heilbrigði og velferð: Vinnustofan stuðlar að velferð nemenda með því að ýta undir jákvæðan bekkjaranda og skólabrag þar sem öll tilheyra. Nemendur læra hvað þeir eiga sameiginlegt með hvert öðru í gegnum fjölbreytta leiki. Nemendur þjálfast í að setja sig í spor annarra og bera sameiginlega ábyrgð á því að öllum líði vel í skólanum.
Lýðræði og mannréttindi:
Við gerð vinnustofunnar var leitast við að hlusta á raddir nemenda. Rætt var við nemendur um þeirra upplifun af fordómum, bæði í rýnihóp og lögð var fyrir nemendur könnun. Nemendur fengu einnig að hafa áhrif á útlit myndbandanna auk þess sem þeir fengu tækifæri til að tjá sig um verkefnin og koma með athugasemdir um þau sem nýttust við að endurbæta verkefnin. Í gegnum fjölbreytt verkefni læra nemendur að þekkja grundvallarmannréttindi og hvernig fordómar og mismunun brjóta á mannréttindum fólks.
Jafnrétti:
Jafnréttismenntun miðar að því að skapa samfélag þar sem allir fá tækifæri til að þroskast á eigin forsendum og njóta virðingar, jafnréttis og þátttöku. Hún fjallar um hvernig þættir eins og aldur, fötlun, kyn, kynhneigð, menning, kynþættir, trúarbrögð, tungumál og þjóðerni geta leitt til mismununar eða forréttinda. Í vinnustofunni fá þátttakendur tækifæri til að skoða hvernig slíkar staðalmyndir og viðhorf myndast, hvaða áhrif þær hafa á einstaklinga og samfélag og hvernig hægt er að stuðla að auknu umburðarlyndi, skilningi og jafnrétti í samskiptum við aðra.
Sköpun:
Í vinnustofunni er lögð áhersla á skapandi og gagnrýna hugsun þar sem þátttakendur skoða fordóma frá ólíkum sjónarhornum. Sköpunarferlið sjálft er mikilvægt, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að ræða hugmyndir, spyrja spurninga og ígrunda eigin viðhorf. Með skapandi verkefnum geta þeir tjáð reynslu sína, unnið með staðalmyndir og þróað lausnir sem stuðla að auknu jafnrétti og umburðarlyndi.
Tenging við menntastefnu Reykjanesbæjar
Mér líður vel: Eitt af markmiðum vinnustofunnar er að nemendur læri að þekkja birtingarmyndir fordóma og geti brugðist við þeim þegar þeir verða vitni af þeim. Fordómar stafa oftast af fáfræði og með því veita nemendum góða fræðslu getum við vonandi minnkað fordóma í samfélaginu þannig að öllum líði vel og enginn þurfi að óttast áreiti vegna húðlitar, uppruna, menningar, trúarbragða o.fl.
Allir með: Mikil áhersla er lögð á að fagna fjölbreytileikanum í vinnustofunni. Í hverju þema eru leikir sem ýta undir þátttöku allra nemenda og lögð er áhersla á að nemendur kynnist hvort öðru betur og sjái hvað það er sem þeir eiga sameiginlegt. Vinnustofan byggir að miklu leyti á umræðum í hópum og nemendur læra að skipast á að tjá skoðanir sínar, taka tillit til annara og sýna virðingu í samskiptum.
Opnum hugann: Í vinnustofunni kafa nemendur ofan í fordóma í samfélaginu, m.a. ómeðvitaða fordóma og staðalímyndir. Í gegnum fjölbreytt verkefni og umræður fá nemendur tækifæri til að beita gagnrýnni hugsun og auka víðsýni.
Sköpunargleði: Í vinnustofunni er lögð áhersla á skapandi og gagnrýna hugsun þar sem þátttakendur skoða fordóma frá ólíkum sjónarhornum. Þeir fá tækifæri til að tjá hugmyndir og reynslu á skapandi hátt, vinna með staðalmyndir og ígrunda eigin viðhorf.
Við og jörðin: Í vinnustofunni er lögð áhersla á mannréttindi og jöfnuð. Nemendur fá tækifæri til að velta fyrir sér eigin viðhorfum og hvernig viðhorf okkar geta haft áhrif á aðra.







