Vertu breytingin
Markmið: Að nemendur læri að nýta gagnrýna hugsun til að bæta
samfélagið.
Að nemendur átti sig á því hvernig þeir geta sjálfir haft áhrif á umhverfi sitt.
Hæfniviðmið:
Lykilhæfni: Unnið með öðrum og lagt sitt af mörkum í uppbyggilegu samstarfi sem tengist námi og félagsstarfi.
Getur sinnt hlutverki sínu í samstarfi og axlað ábyrgð.
Samfélagsgreinar: Ígrundað eigin getu til aðgerða og beitt sér á ábyrgan hátt fyrir málefnum sem stuðla að betra samfélagi.
Tímalengd:
20-40 mínútur
Efni og undirbúningur:
Post it miðar, blýantar.
Para nemendur saman.
Framkvæmd verkefnisins:
Innlögn (5 mín): Kennari segir nemendum að við getum öll unnið saman að því að skapa rými þar sem öll upplifa sig velkomin. Nú ætli þeir að vinna saman að því að skoða hvað við getum gert til að öll upplifi sig velkomin í skólanum.
Verkefnavinna (15-20 mín): Think, pair, share. Allir nemendur fá einn post it miða og eiga að svara spurningunni ,,Hvað getum við gert til að öll upplifi sig velkomin og líði vel í skólanum?” Nemendum er sagt að svara spurningunni alveg sjálf og eiga ekki í samtali við samnemendur (2-3 mínútur).
Síðan eiga pör að ræða saman og velja einn punkt sem þeir telja mikilvægastan (5-7 mín). Kennari biður hvert par að deila sínum punkti.
Kennari getur tekið dæmi um eftirfarandi spurningar til að koma nemendum af stað:
Hvað getum við gert þannig að nýjum nemendum líði vel í skólanum?
Hvað getum við gert til að tryggja að öll geti tekið þátt í öllu í skólastarfinu óháð tungumálakunnáttu?
Hvað geta kennarar gert svo nemendum líði betur í skólanum?
Umræður: Þegar allir nemendur hafa deilt skráir kennari punktana niður.
Niðurstöðurnar eru svo nýttar til umbóta í skólanum.



