Bandamennska-Hvað get ég gert?
Markmið: Að nemendur þekki birtingarmyndir fordóma í ýmsum aðstæðum.
- Að nemendur æfist í að bregðast við fordómum á viðeigandi hátt.
- Að nemendur geti sett sig í spor annarra.
Hæfniviðmið:
- Samfélagsgreinar: Ígrundað eigin getu til aðgerða og beitt sér á ábyrgan hátt fyrir málefnum sem stuðla að betra samfélagi.
Tímalengd:
20-40 mínútur
Efni og undirbúningur:
Umræðuspjöld (útprentuð) - Það eru tvær útgáfur sem hægt er að velja á milli
Kennari getur skipt spjöldunum eins og hentar, nokkur spjöld á hóp eða öll.
Raða nemendum í hópa (2-3 saman)
Blöð - Hver hópur fá blað til að skrifa punkta úr umræðunum.
Blýantur - Hver hópur fær einn blýant
Framkvæmd verkefnisins:
Innlögn (5 mín): Kennarinn útskýrir fyrir nemendum að þeim verði skipt í 2-3 manna hópa. Hver hópur fær úthlutað umræðuspjöldum. Kennari segir nemendum að þeir eigi að lesa eitt spjald í einu og ræða saman um hvernig hægt væri að bregðast við þessum aðstæðum sem fram á koma á spjöldunum á viðeigandi hátt. Nemendur fá blöð til þess að punkta svör sín niður og þeim sagt að í lokin verði tekin umræða með öllum.
Verkefnavinna (10-15 mín): Nemendur í hópunum lesa eitt spjald í einu og svara spurningunni. Þeir punkta það helsta niður á blað til þess að geta tekið þátt í umræðum í lokin. Nemendur eru minntir á mikilvægi þess að allir í hópnum taki þátt í umræðunni.
Umræður (10-15 mín): Þegar nemendur hafa fengið 10-15 mínútur til að svara spurningunum biður kennari hvern hóp að segja frá einu spjaldi og þeirra viðbrögðum. Kennari hvetur nemendur til virkrar umræðu og spyr yfir hópinn hvort aðrir hefðu brugðist við á sama hátt eða hvort þeim detti í hug aðrar viðeigandi leiðir til að bregðast við.



