Staðalímyndir um fjarlæg lönd
Markmið
- Að nemendur átti sig á staðalímyndum um fjarlæg lönd
- Að nemendur átti sig á því hvernig við lærum staðalímyndir
Hæfniviðmið
Samfélagsgreinar:
- Að nemendur geti fjallað með gagnrýnum hætti um og greint staðalmyndir og fordóma, uppruna þeirra og afleiðingar,
Lykilhæfni:
- Að nemendur geti beitt ólíkum sjónarhornum og gagnrýninni hugsun í fjölbreyttum viðfangsefnum.
Tímalengd:
15-30 mín
Efni og undirbúningur:
Tvö hvít blöð (skrifa sönn á eitt blað og ósönn á annað)
Tússlitur
Kennaratyggjó
Framkvæmd verkefnis:
Kennari hengir upp tvö blöð í sitthvorn horn stofunnar sem á stendur sönn og ósönn áður en tíminn byrjar
og opnar glærurnar á skjá.
Innlögn (5 mín):
- Kennari fer með nemendur yfir glæru eitt og útskýrir hvernig leikurinn virkar
Verkefni (5-10 mín):
2. Kennari les eina staðhæfingu í einu og nemendur velja horn.
Samantekt (5-10 mín):
3. Kennari fer með nemendum yfir umræðuspurningarnar.





