Markmið:

  • Að nemendur þekki hugtakið öráreiti.
  • Að nemendur átti sig á áhrifum öráreitis.
  • Að nemendur þekki leiðir til að bregðast við öráreiti.
  • Að nemendur gett sett sig í spor annarra.


Hæfniviðmið:

Lykilhæfni:

Getur sinnt hlutverki sínu í samstarfi og axlað ábyrgð.

Getur beitt ólíkum sjónarhornum og gagnrýninni hugsun í fjölbreyttum viðfangsefnum.


Samfélagsgreinar:

Getur fjallað með gagnrýnum hætti um og greint staðalmyndir og fordóma, uppruna þeirra og afleiðingar,


Tímalengd:

20-40 mín


Efni og undirbúningur:

Skipta nemendum í pör

Skjár

Hátalari

Canva glærur


Framkvæmd verkefnis:

Innlögn (10 mín): Tíminn byrjar á því að kennari sýnir nemendum myndband um öráreiti (kveikja) sem er á Canva glærunum. Síðan fer kennari yfir allar glærurnar með nemendum og hvetur nemendur til að rétta upp hönd ef þeir vilja spyrja að einhverju eða tjá sig.

Verkefnavinna (5-10 mín): Kennari parar nemendur saman í verkefnavinnu. Verkefnin má finna á næstsíðustu glærunni. Nemendur vinna saman að því að svara spurningunum.

Samantekt (10-15 mín):

Umræður - Kennari fær 3-4 pör til að deila svörum. Þeir deila með hópnum hvernig þeir telji að einstaklingurinn gæti mögulega upplifað, hvar það gæti átt sér stað og hvaða áhrif þeir telja að það geti haft á aðilann. Nemendur eru síðan spurðir hvort að þeir telji að fólkið á myndinni sé líklegt til að upplifa eins öráreiti. Af hverju og af hverju ekki?

Í lokin er nemendum sýnd aftasta glæran og þeim beint á að á Íslandi séu margir þekktir einstaklingar af erlendum eða blönduðum uppruna og nemendur spurðir hvort þau kannist við einhverja á myndinni.