Öráreiti - Dæmisögur
Markmið:
- Að nemendur átti sig á áhrifum öráreitis.
- Að nemendur þekki leiðir til að bregðast við öráreiti.
- Að nemendur gett sett sig í spor annarra.
Hæfniviðmið:
Lykilhæfni:
- Getur sinnt hlutverki sínu í samstarfi og axlað ábyrgð.
- Getur beitt ólíkum sjónarhornum og gagnrýninni hugsun í fjölbreyttum viðfangsefnum.
Samfélagsgreinar:
- Getur fjallað með gagnrýnum hætti um og greint staðalmyndir og fordóma, uppruna þeirra og afleiðingar,
Tímalengd:
20-40 mín
Efni og undirbúningur:
Skipta nemendum í 3-5 manna hópa
Verkefnablöð (hver hópur fær eina dæmisögu)
Framkvæmd verkefnis
Innlögn (5-10 mín):
- Mikilvægt er að nemendur séu búnir að horfa á myndbandið um öráreiti
- Kennari biður nemendur að setjast í hópana.
- Kennari segir nemendum að hver hópur fái eina dæmisögu sem þau eigi að lesa, ræða saman og svara spurningum.
Verkefnavinna (10-15 mín):
4. Nemendur fá 10 mínútur til þess að ræða saman og svara spurningum úr dæmisögunni. Einn nemandi í hópnum tekur að sér hlutverk ritara og ritar svörin á verkefnablaðið.
Samantekt (10-15 mín):
5. Kennari fer yfir eina dæmasögu í eina og biður hópana sem fengu söguna að deila svörum, það er síðan gert fyrir öll dæmin.





