Staðalímyndir og menningarfordómar
Markmið
- Að nemendur átti sig á tengslum staðalímynda og menningarfordóma.
- Að nemendur átti sig á áhrifum menningarfordóma á einstaklinga.
- Að nemendur átti sig á að margt er líkt í menningum ólíkra landa.
Hæfniviðmið
Samfélagsgreinar:
- Að nemendur geti fjallað með gagnrýnum hætti um og greint staðalmyndir og fordóma, uppruna þeirra og afleiðingar,
Lykilhæfni:
- Að nemendur geti beitt ólíkum sjónarhornum og gagnrýninni hugsun í fjölbreyttum viðfangsefnum.
Tímalengd:
30-45 mín
Efni og undirbúningur:
Myndband (ca. 4 mín) - The danger of a single story
Skjár
Hátalari
Canva glærur hér (myndband er líka í glærum)
Heimskort
.
Framkvæmd verkefnis:
Innlögn (5 mín):
Mikilvægt er að nemendur séu búnir að horfa á myndbandið Menningarfordómar áður en verkefnið er unnið.
Kennari byrjar á að sýna nemendum myndbandið ,,The Danger of a Single Story'' sem er á glæru tvö.
Verkefnavinna:
Umræða (5-10 mín):
Í kjölfar myndbandsins spyr kennari nemendur
,,Hvað við getum lært af frásögn Adichie''?
(Kennari útskýrir að við fáum alltaf bara að heyra eina sögu um fólk, staði eða menningar þá fáum við oft ranga mynd þegar það eru í raun alltaf mismunandi sögur. Í myndbandinu sjáum við það til dæmis þegar Adichie á erfitt með að trúa að fjölskylda Fide geti skapað eitthvað fallegt því hún var búin að áætla að þau væru fátæk og sá þau því bara með þeim augum. Þegar hún fer svo sjálf til Bandaríkjanna áttar hún sig á því að fólk er með ákveðnar hugmyndir um hana sem þau byggja á einhliða ímynd þeirra af Afríku.
Verkefni (10-15 mín):
Kennari
Samantekt (5-10 mín):
Kennari spyr nemendur hvernig staðhæfingarnar á leiknum tengist við frásögn Adichie um single stories.
Kennari hvetur nemendur til að taka virkan þátt í umræðunni. Í lokin dregur kennari umræðuna saman og
útskýrir fyrir nemendum að við heyrum eða sjáum oft bara eina sögu frá ákveðnum menningum eða löndum og að sú saga
geti orðið til þess að við sjáum fólk öðrvísi út frá þessum þáttum, án þess að kynnast því persónulega eða vita neitt um það. Þess vegna er
mikilvægt að við séum alltaf með opin huga og að við séum meðvituð um hvernig ákveðnar staðalímyndir geta ýtt undir menningarfordóma.
Ítarefni:
Fyrirlestur Adichie í fullri lengd
Chimamanda Ngozi Adichie: The Danger of a Single Story | TED



