Kynþátta- eða menningarfordómar
Markmið
- Að nemendur þekki birtingarmyndir kynþátta- og menningarfordóma
- Að nemendur átti sig á því að menningarfordómar eru nátengdir kynþáttafordómum
Hæfniviðmið
Samfélagsgreinar:
- Að nemendur geti fjallað með gagnrýnum hætti um og greint staðalmyndir og fordóma, uppruna þeirra og afleiðingar,
Lykilhæfni:
- Að nemendur geti beitt ólíkum sjónarhornum og gagnrýninni hugsun í fjölbreyttum viðfangsefnum.
Tímalengd:
20-40 mín
Efni og undirbúningur:
Nemendum er skipt í pör
Hvert par fær útprentað verkefnablað sem má finna hér
Framkvæmd verkefnis:
Innlögn (5 mín):
- Nemendur horfa á myndbandið um menningarfordóma
2. Kennari lætur pörin setjast saman
3. Kennari útskýrir fyrir nemendum að þeir fái verkefnablað með nokkrum dæmum. Þeir eigi að lesa yfir hvert dæmi og meta hvort að þeir telji það vera kynþátta- eða menningarfordóma. Nemendur merkja K við dæmin sem þeir telja að séu kynþáttafordómar og M við dæmin sem þeir telja menningarfordóma. Mikilvægt er að benda nemendum á að stundum getur bæði átt við.
Verkefnavinna:
Verkefni (10-15 mín):
4. Nemendur fá 10-15 mínútur til að vinna í verkefnablaðinu og á meðan gengur kennarinn um og aðstoðar nemendur eftir þörfum.
Samantekt (5-10 mín):
5. Kennari fer yfir hvert dæmi og biður ákveðin pör um að segja frá sinni niðurstöðu og spyr hvort aðrir séu sammála.
Í lokin spyr kennari nemendum hvort þeim hafi fundist verkefnið erfitt eða auðvelt og minnir nemendur á að kynþátta- og menningarfordómar séu nátengdir.





