Níðyrði (n-orðið)


Góður undirbúningur er mikilvægur þegar rætt er við nemendur um viðkvæm málefni.

Mikilvægt er að kennarar fari vel yfir leiðbeiningar áður verkefnið er unnið með nemendum.

Leiðbeiningar fyrir kennara má finna  hér.


Markmið: 

  •  Að nemendur þekki uppruna og sögu n-orðsins.
  •  Að nemendur ígrundi notkun orðsins í samtímanum.
  •  Að nemendur átti sig á áhrifum n-orðsins á ólíka einstaklinga og hvað sé hægt að

         gera til að draga úr áhrifum og skaðsemi sem n-orðið getur haft á einstakalinga.

 

Hæfniviðmið:

Samfélagsgreinar:  Getur borið virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum, sett mörk í samskiptum og virt mörk annarra og útskýrt mikilvægi virðingar.

Getur fjallað með gagnrýnum hætti um og greint staðalmyndir og fordóma, uppruna þeirra og afleiðingar.

Getur sýnt fram á skilning á sögulegu og hugmyndafræðilegu samhengi atburða sem eiga sér stað í samtímanum á heimsvísu.


Íslenska:  Getur miðlað þekkingu sinni og reynslu, tjáð hugmyndir sínar og skoðanir og fært rök fyrir þeim með fjölbreyttum leiðum,


Tímalengd:

40-60 mín


Efni og undirbúningur:

Skipta þarf nemendum í hópa (3-5 í hóp)

Útbúa Mentimeter eða annan vettvang til að taka saman niðurstöður.


Framkvæmd verkefnis:

Mikilvægt er að kennara hafi farið vel yfir fylgiskjalið, leiðbeiningar fyrir kennara..


Innlögn (10-15 mín): 

Kennari spyr nemendur hvort þeir viti hvað níðyrði eru (kanna forþekkingu). Kennari fræðir svo nemendur um sögu n-orðins með glærum sem finna má hér.


Framkvæmd verkefnis (15-20 mín):

Kennari skipar nemendum í hópa þar sem 3-5 eru saman í hóp. Kennari útskýrir verkefnið sem finna má í glærunum og fer með nemendum yfir eina dæmisögu í einu, nemendur fá ca. 3 mínútur til að ræða saman og ákveða svar við hverri dæmisögu.


Samantekt (2 mín):

Nemendur svara spurningunni ,,Hvað lærðir þú af þessu verkefni?”,  nemendur svara á Mentimeter (mikilvægt að kennari hafi útbúið Mentimeter fyrir tímann). Einnig er hægt að biðja nemendur um að skrifa svarið á post-it miða eða hvítt blað og skila kennara í lok tímans.